Kínversku naglamorðin

Please select
Bemærk venligst, at den normale 14 dages fortrydelsesret ophører ved modtagelse af adgang til e-bogen.

Produkt beskrivelse

Dagarnir hafa verið með rólegra móti hjá hinum háttvirta Dee dómara og varðliði hans síðan hann tók við dómaraembættinu í Pei-chow héraði. Þegar Yeh bræðurnir birtast óvænt í réttarsal hans verður þó breyting á, því að systir þeirra hefur verið myrt með grimmilegum hætti og morðingjann er hvergi að finna. Atvik þetta er þó einungis byrjunin á óhuggulegri og flókinni ráðgátu sem enginn annar en Dee dómari er megnugur að leysa.

Ráðgátur Dee Dómara

Bækurnar um ráðgátur Dee dómara eru byggðar á fornum glæpabókmenntum þar sem Dee leysir margslungin mál sem eiga mörg hver rætur sínar að rekja úr raunverulegum dómsmálum frá Kína.

Robert van Gulik (1910-1967) var hollenskur rithöfundur sem er best þekktur fyrir ævintýrin um Dee dómara. Sögupersónuna fékk hann að láni úr kínverskri skáldsögu frá 18. öld sem hann þýddi yfir á ensku og var hans fyrsta útgefna verk. Í kjölfarið skrifaði hann 17 bækur um Dee dómara sem komu út á árunum 1949-1968. Gulik var margt til lista lagt en ásamt ritstörfunum var hann austurlandafræðingur, diplómati og tónlistarmaður.

Oplysninger om tilgængelighed

Ingen tilgængelighedsoplysninger. Kontakt kundeservice for info kundeservice

Detaljer

  • ISBN13 9788728451151
  • Udgivet 2023
  • Forlag SAGA Egmont
  • Format Elektronisk medie
  • Sprog Icelandic